Fjölskyldu í Mosfellsbænum brá heldur betur í brún þegar grímuklæddur maður kom með hamar og mölvaði bílrúðuna hjá þeim. Maðurinn stal engu og fjölskyldan veit ekki hvers vegna hann gerði þetta. Einnig var spreyjað á girðinguna.„Við höfum verið að velta okkur fyrir hver gæti verið þarna að gjörðum en enginn kemur til greina, hvort þetta sé bara maður í maníu,“ segir Jóhann Hlynur Ólafsson, íbúi í Þrastarhöfða í Mosfellsbænum.
Martröð í Mosfellsbæ – „Það er bara enginn sem kemur til greina eða gæti verið í svona reiðikasti upp á móti móður minni“