Boxarinn Emin Kadri er á leiðinni til Kaupmannahafnar að berjast við Erik Mato frá Ungverjalandi. Emin er 23 ára og er atvinnumaður í boxi, hann hefur stundað íþróttina frá tíu ára aldri. Áður en hann gerðist atvinnumaður átti hann farsælan feril sem áhugamaður og barðist rúmlega 50 sinnum og tók þátt í heims- og Evrópumeistaramótum. Emin er líka virkur á samfélagsmiðlum og þar deilir hann alls kyns efni bæði tengdu atvinnumennskunni og daglegu lífi.
Emin var gestur þeirra Guðrúnar Dísar Emilsdóttur og Atla Fannars Bjarkasonar í Morgunútvarpinu.
Þótti gaman að slást
Emin segist hafa byrjað í boxi einfaldlega vegna þess að honum þótti gaman að slást. Hann kveðst hafa verið orkumikill krakki, reiður og þurft útrás fyrir alla þá orku sem hann hafði. Fyrir börn sem finna sig ekki í bolta- eða liðsíþróttum yfirhöfuð segir Emin box vera tilvalið.
„Bara ekkert betra finnst mér vegna þess að þetta er allt einstaklingsbundið, þú ert ekki bundinn við eitthvað lið.“
Mikill agi fylgir því að æfa box og segir Emin það geta verið auðmýkjandi fyrir börn að átta sig á því að þau beri ábyrgð á eigin árangri. Í boxinu lærði Emin sjálfur að hafa fyrir hlutunum og hafa gaman af því.
„Ef þú æfir þig ekki og ert ekki duglegur og ferð svo að keppa þá ertu bara laminn í klessu, það er smá þannig, það er alveg smá humbling að vita úr hverju þú ert gerður þegar þú ert krakki.“
Ekki nóg að vera bara góður í að boxa
Atvinnumennskunni þurfti Emin að vinna fyrir, hann byrjaði í ólympískum hnefaleikum og vann sig upp en árið 2024 bauðst honum tækifæri sem hann gat ekki neitað, að færa sig í atvinnumennskuna.
„Svo fer ég bara sjálfur út, sótti þetta bara sjálfur, ég fór bara einn út að kynnast helling af fólki og búa til tengslanet í Bandaríkjunum og svo kom þetta tækifæri bara upp.“
Íþróttina segir Emin ekki vera einfalda, samspil margra þátta skipti máli. Fókus er einn mikilvægur þáttur, það að vera góður í að boxa er ekki nóg segir Emin heldur þurfi einbeitingin einnig að vera í hámarki.
„Þú þarft að vera með ógeðslega góða einbeitingu líka vegna þess að ef einbeitingin fer í eina sekúndu getur bardaginn klárast út af því að þú færð eitthvað högg á þig.“
Virkur á samfélagsmiðlum meðfram atvinnumennskunni
Meðfram atvinnumennskunni hefur Emin verið virkur á samfélagsmiðlum, þar deilir hann ýmsu tengdu daglegu lífi og atvinnumennskunni sömuleiðis. Á miðlum sínum hefur hann opinberað ýmsar skoðanir sem mörgum hafa fundist umdeildar.
Hann segir tilganginn með birtingunni vera að hafa jákvæð áhrif á fólk, markmiðið sé að hvetja fólk áfram.
„Ef ég pósta endalaust á tikok veistu aldrei hver sénsinn er á að einhver sjái þetta og fái þessa hvatningu í það að taka næsta skref.“
Stoltur að keppa fyrir hönd Íslands
Foreldrar Emins fluttu frá Júgóslavíu til Íslands fyrir um þrjátíu árum og segir Emin foreldra sína hafa lagt mikla áherslu á að koma sér inn í íslenskt samfélag. Hann fæðist hérlendis og segist hann aldrei hafa upplifað sig óvelkominn.
„Ég kalla mig bara Íslending en á sama tíma er oft eins og ég sé ekki nógu mikill Íslendingur því foreldrar mínir eru frá Albaníu en ég er ekki nógu mikill Albani því ég er ekki fæddur í Albaníu.“
Emin hefur alltaf keppt fyrir hönd Íslands en segist þó hafa fengið spurningar af hverju hann keppi ekki frekar fyrir hönd Albaníu.
„Ég bara elska Ísland og þar var alltaf bara spurt en ertu ekki frá Albaníu? Ég hata ekkert Albaníu en ég fæddist á Íslandi. Ísland hefur gefið mér allt sem ég hef og ég hef búið hérna alla mína ævi, þannig að það er mjög augljóst fyrir mig að vera með þann fána.“
Markmið Emins í boxinu er ekki flókið, það er einfaldlega bara að vera bestur.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Emin í Morgunútvarpinu í heild sinni hér fyrir neðan.