Dauði meðal laxa í eldiskvíum Kaldvíkur á Reyðarfirði jókst alls um 6,5% síðan 4. september eftir að marglyttur herjuðu á kvíarnar.
Í tilkynningu til kauphallarinnar segir Kaldvík að brugðist hafi verið við þessu með því að auka slátrun úr völdum kvíum og að skip hafi verið kölluð til svo hægt væri að fjarlægja dauðan fisk og draga úr frekari hættu á tjóni.
Áætlanir Kaldvíkur um slátrun árið 2026 haldast þó óbreyttar eða um það bil 17 þúsund tonn.
Samkvæmt Kaldvík hefur fjöldi marglyttna í firðinum dvínað en eftirlit heldur áfram.