Eldurinn kviknaði í flutningaskipinu Ocean Melody sem lá við festar til viðgerða í Beihai-skipasmíðastöðinni í hafnarborginni Qindao á norðausturströnd Kína. AP-fréttastofan segir að skipið sigli undir líberískum fána.
Kínverska fréttaveitan Xinhua segir mannskaðann mikinn. Xi Jinping forseti segist hafa gefið skipanir um björgun á fólki.
Li Qiang, forsætisráðherra Kína, segir að fólk sé fast um borð í skipinu.
Fréttin verður uppfærð.