Lögreglan í Bretlandi handtók í gær karlmann á þrítugsaldri í bænum Newton Abbot í Devonskíri, sem grunaður var í tengslum við morðrannsókn á Ann Widdecombe hefur nú verið sleppt úr haldi að sögn lögreglunnar.
Lögregla segir rannsókninni miða vel áfram og morðið sé ekki rannsakað sem hryðjuverk eða pólitískt morð að svo stöddu. Réttameinafræðingar rannsaka nú heimili Widdecombe og nágrenni þess.
Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Íhaldsflokksins og seinna talsmaður Umbótaflokksins, lést í gærmorgun 78 ára að aldri. Andlátið sé rannsakað sem morð í kjölfar „grunsamlegs andláts“ hennar á heimili hennar í Dartmoor að sögn lögreglunnar í Devon.