Manía í miðborginni

Yfir hundrað ungmenni fylgdu bandarísku samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat um miðborg Reykjavíkur í gær. Stefán Kári Ottósson, matarleiðsögumaður hjá Wake Up Reykjavík og leikari, segist aldrei hafa séð aðra eins ágengni og hamagang á sínum ferli.
Planið var að taka um klukkutíma í beinu streymi á YouTube til að kynna íslenska matarmenningu fyrir Cenat á Skólavörðustíg og Hjartatorgi. Sú áætlun fór hins vegar algjörlega út um þúfur vegna gríðarlegs kraðaks. Tugir aðdáenda á hjólum og vespum eltu hópinn auk þess sem fólk klifraði upp á bíl streymisins og barði í rúðurnar. Matartúrinn styttist því niður í fimm til tíu mínútur þar sem bruna þurfti á milli staða.
Þrátt fyrir áganginn náði Cenat að smakka íslenskan þjóðmat á Hjartatorgi. Að sögn Stefáns fannst Cenat sviðakjamminn frábær og borðaði meðal annars augað. Hrútspungarnir vöktu hins vegar minni lukku og hákarlinn gat hann ómögulega haldið niðri og ældi honum upp aftur.
Eftir að stjarnan yfirgaf svæðið reyndu mörg hver að snerta eða kyssa borðið og bekkinn sem Cenat sat á. Gengu sumir svo langt að reyna að borða afgangana hans, þar á meðal hálfétinn lundabagga og jafnvel hákarlabitann sem streymirinn hafði tuggið og ælt upp úr sér. Stefán Kári þurfti að grípa inn í til að stöðva einn aðdáandann og segist aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt, þrátt fyrir að hafa leiðsagt prinsum og háttsettum pólitíkusum.