Ekki verður ráðist í endurmálun á sundlaug Vesturbæjarlaugar í sumar heldur aðeins staðbundnar viðgerðir, að því er fram kemur í skriflegu svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn mbl.is.
Greint var frá því á mbl.is í gær að málningin í sundlaug Vesturbæjarlaugar hefði haldið áfram að flagna í allan vetur þrátt fyrir viðgerðir á síðasta ári og lokanir vegna þeirra.
Liggja nú tvær slysaskýrslur fyrir sem rekja má til vandans.
Hefði átt að þorna í 13 - 14 daga
Í svarinu kemur fram að meginorsökin fyrir því að málningin flagni sé sú að hún hafi ekki fengið að þorna og harðna nógu lengi, áður en laugin var fyllt og tekin í notkun aftur.
„Við framkvæmdina var unnið með um 48 klukkustunda biðtíma áður en vatni var hleypt á laugina, en miðað við hitastig á framkvæmdatímanum hefði hörðnunartími átt að vera allt að 13–14 dagar. Afleiðingin varð veik binding milli málningarlaga sem leiddi til flögnunar,“ segir í svarinu.
Til upprifjunar var lauginni fyrst lokað 19. maí í fyrra vegna viðhaldsframkvæmda sem drógust á langinn og var hún ekki opnuð aftur fyrr en 19 júní.
Þá var henni aftur lokað 18. ágúst og opnuð viku síðar. 29. ágúst var henni svo lokað í sólarhring og var hún opin til 13. október þegar henni var lokað á ný til 28. október.
Sundlaugin endurmáluð næsta sumar
Tókst ekki að leysa vandann í þeim ófáu lokunum laugarinnar á seinasta ári?
„Nei. Fyrstu viðgerðirnar sem gerðar voru eftir að flögnun kom í ljós reyndust ekki leysa undirliggjandi vandamál. Í ágúst 2025 var laugin lokuð vegna flögnunar og gerðar staðbundnar viðgerðir. Fljótlega kom þó í ljós að flögnunin hélt áfram og síðar varð ljóst að um kerfislægan ágalla var að ræða en ekki staðbundið vandamál. Því var laugin lokuð aftur í október 2025 og hreinsuð með háþrýstiþvotti,“ segir í hinu skriflega svari Reykjavíkurborgar.
Tekin hafi verið ákvörðun um að endurmála sundlaugarkarið næsta sumar.
Efnisval, aðstæðustýring og gæðaeftirlit ekki fullnægjandi
Í lok svarsins segir að verkefnið sem hófst í fyrrasumar hafi fyrst og fremst verið endurbótaverkefni á laugarkerinu. Ástæðan fyrir því að málningin flagni virðist fyrst og fremst hafa verið sú að málningarkerfið náði ekki fullnægjandi hörðnun áður en laugin var fyllt og tekin aftur í notkun.
„Við framkvæmdina virðist einnig hafa skipt máli að efnisval, aðstæðustýring og gæðaeftirlit hafi ekki verið með þeim hætti sem best hefði verið á kosið. Í kjölfar opnunar byrjaði málning að flagna sem leiddu til lokana á sundlaugarkerinu til að fara í staðbundnar viðgerðir.“
Þær aðgerðir hafi þó ekki dugað til að stöðva vandann þar sem síðar kom í ljós að um víðtækari og kerfisbundnari galla var að ræða. Hafi meginvandinn tengst framkvæmd og aðstæðum við málunina.

