Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað manndrápsmálinu gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni frá. Héraðsdómur telur að Skúla hafi þegar verið refsað þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi.Vísir greindi fyrst frá.Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Það er vegna andláts sjúklings á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.Málið vatt svo upp á sig og fjölgaði í hópi aðstandenda sem taldi hann hafa valdið ótímabærum dauðsföllum á stofnuninni.
Málinu gegn lækninum Skúla Tómasi vísað frá