Héraðsdómur Reykjaness vísaði máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni frá í morgun. Hann var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum heilbrigðisstarfsmanna.
Héraðsdómur telur Skúla hafa verið refsað vegna málsins þegar hann var sviptur lækningaleyfi árið 2021. Hann fékk lækningaleyfi á ný árið 2024.
Ekki liggur fyrir hvort ákæruvaldið kæri niðurstöðu Landsréttar.
Lögregla hefur rannsakað Skúla frá árinu 2021 fyrir röð alvarlegra mistaka sem hefðu leitt til andláts sjúklings.