„Þetta er að sjálfsögðu ekki á vegum kirkjunnar eða að frumkvæði hennar. Það hefur einhver tekið sig til, virðist vera, í skjóli nætur og málað yfir Pride-fánann sem er mikil prýði fyrir framan kirkjuna.“
Þetta segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Í nótt var íslenski fáninn málaður yfir regnbogafánann á tröppunum fyrir utan kirkjuna.
Arna Ýrr segir að í fyrstu hafi hún vonast til að myndir af skemmdarverkinu hafi verið gerðar með aðstoð gervigreindar.
Verður málaður aftur á bráðlega
Það hafi þó verið kominn tími á að hressa upp á regnbogafánann, segir hún, og á næstu dögum hyggst kirkjan safna saman fólki til að mála hann aftur á tröppurnar.
„Þetta er ágætis hvatning fyrir okkur til að gera það. Nú munum við vinda okkur í það.“
Spurð hvort kirkjan hyggist tilkynna verknaðinn til lögreglu segir Arna það ekki enn liggja fyrir.
„Við eigum eftir að skoða hvort það er ástæða til þess. Þetta er ákveðin tegund af skemmdarverki. Það er verið að gera þetta á eign kirkjunnar sem við höfum yfirráð yfir. Það er ekki leyfilegt að hver sem er geti komið og gert hvað sem er þar.“
Að lokum bætir hún við að Grafarvogskirkja flaggi íslenska fánanum við hún við kirkjuna. „Eins og allar aðrar kirkjur. Það er rétt notkun á fánanum og þannig sýnum við honum þá virðingu sem hann á skilið.“