Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson braut blað í íslenskri golfsögu í gærkvöldi þegar hann tryggði sér þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu fyrstur Íslendinga.
Um er að ræða sterkasta golfmót heims þar sem allir bestu kylfingar heims eru samankomnir.
Gunnlaugur tryggði sér þátttökuréttinn með því að enda í einu af fjórum efstu sætunum á úrtökumóti í Ohio í gær. Fjórir efstu kylfingarnir á mótinu tryggðu sér þátttökurétt og tókst Gunnlaugi að hafa sigur í bráðabana til að komast á mótið.
Ólafur Loftsson, afreksstjóri Golfsambandsins, sagði við RÚV í morgun að afrek Gunnlaugs væri magnað.
„Þetta er risa stórt. Þetta er einfaldlega sterkasta golfmót í heimi. Af risamótunum hvað styrkleika mótanna varðar, þá er þetta talið sterkasta risamótið. Þannig það er ekki hægt að fara lengra en inn á þetta mót.“
Gunnlaugur Árni á sannarlega framtíðina fyrir sér en hann er aðeins tvítugur að aldri.
Ólafur sagði við RÚV að það hefði verið taugatrekkjandi að fylgjast með bráðabananum í gærkvöldi. Opna bandaríska meistaramótið hefst í New York-ríki þann 18. júní næstkomandi.
It’s Official: Árni Sveinsson is heading to the U.S. Open after a four-way playoff! 👏
He becomes the first ever Icelander to qualify for the prestigious tournament with nine under in two rounds (67, 68).#GeauxLow | 📺 Golf Channel pic.twitter.com/293errJv7C
— LSU Men’s Golf (@LSUMensGolf) June 8, 2026