Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í kvöld um að maður hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook kemur fram að hann hafi fundist neðar í ánni eftir stutta leit og verið bjargað á land.
Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík með þyrlu Gæslunnar.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar um líðan hans.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu lögreglunnar.