Emmanuel Macron Frakklandsforseti fagnaði í dag áskorun Volodimírs Selenskí Úkraínuforseta um beinar viðræður við Vladímír Pútín Rússlandsforseta og sagði að kominn væri tími til að hefja aftur viðræður við Rússa.
„Ég tel að það sé nú undir Úkraínu og Rússlandi komið að koma á bæði vopnahléi og friðaráætlun. Það eru Evrópubúar sem geta hjálpað til við það,“ sagði Macron á leiðtogafundi Evrópusambandsins (ESB) og Balkanskagans í Svartfjallalandi í dag.
Selenskí lagði til að hann og Pútín myndu funda augliti til auglits. Það gerði hann í opnu bréfi til rússneska leiðtogans í gær.
Macron kallaði bréfið „gott framtak“. ESB og Þýskaland fögnuðu einnig áskorun Selenskís um beinar samningaviðræður við Pútín.
Núna er rétti tíminn
Macron sagðist vilja „horfa til framtíðar og ræða hvernig við getum endurreist viðræður til að koma á vopnahléi og friði“.
„Ég held að nú sé rétti tíminn, miðað við hvernig ástandið er að þróast,“ sagði hann.
Umræða hefur aukist í Evrópu um að hefja aftur samskipti við Rússland vegna Úkraínu þar sem viðræður á vegum Bandaríkjanna um að stöðva bardagana hafa stöðvast.
„Við erum einnig mjög áhugasöm um að skipuleggja umræður og skoðanaskipti við Rússland um mál sem varða sameiginlega hagsmuni okkar,“ sagði Macron.
Macron sagðist myndu hitta Selenskí á næstu dögum og einnig að hann hefði boðið vestrænum ríkjum sem taka þátt í „bandalagi hinna viljugu“ til að styðja við hvers kyns vopnahléssamkomulag til Parísar á þjóðhátíðardaginn 14. júlí.