Sifjar, Elidon, Snjór og Jad voru öll samþykkt sem karlkyns eiginnöfnin og færð á mannanafnaskrá samkvæmt úrskurði Mannanafnanefndar, sem kom saman á föstudag síðastliðinn.
Aftur á móti hafnaði nefndin karlanöfnunum Mikhael og Danivaan.
Á sama nefndarfundi var kvenkyns eiginnafnið Mollý samþykkt sem og kynhlutlausa nafnið Freyjó og þau færð á mannanafnaskrá.