Leik- og söngkonan Jennifer Lopez slær á þann orðróm að hún sé að hitta leikarann Brett Goldstein en þau leika saman í nýju kvikmyndinni Office Romance.
„Það er aldrei þannig að ég sjáist með einhverjum eða vinni með einhverjum án þess að fólk fari að halda að við séum að hittast,“ sagði Lopez í morgunþættinum Today á dögunum. Goldstein var með henni í þættinum.
„Ég held að ef maður stendur bara nálægt henni þá fari sögusagnirnar af stað,“ sagði hann glettinn.
Þrátt fyrir þetta var þáttastjórnandinn, Savannah Guthrie, ekki alveg sannfærð og ýtti frekar á þau um skýrari svör. Þá ítrekaði Lopez að ekkert væri til í þessum orðrómi og benti á að hún hefði á árinu einnig verið tengd öðrum frægum mönnum, meðal annars Kevin Costner.
Guthrie sagði að slíkt væri líklega fylgifiskur þess að vera aðlaðandi og eftirsóttur einstaklingur.
„Það gerir það ekki að sannleika,“ svaraði Lopez.
Nýtur þess að vera einhleyp
Lopez á tvíbura með fyrrverandi eiginmanni sínum Marc Anthony. Einnig var hún gift Ben Affleck og tók samband þeirra mikið pláss í sviðsljósinu. Þau skildu árið 2024.
Í viðtali við Good Morning America í mars á þessu ári sagði hún að sambandsslitin hefðu orðið til þess að hún þyrfti að staldra við og spyrja sjálfa sig hvað væri að gerast í lífi hennar. Eftir tímabil sjálfsskoðunar segist hún nú vera mjög hamingjusöm.
„Ég vil ekki eyðileggja neitt. Það er svo gott eins og staðan er núna,“ sagði hún í þættinum.