Hjáleið í austurátt verður um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg.
Þá standa einnig yfir framkvæmdir á Reykjanesbraut milli klukkan ellefu og sautján í austurátt við Innri-Njarðvík. Hjáleið hefur verið merkt. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát og virða merkingar.
Þá bregður til tíðinda á Krýsuvíkurvegi en búast má við truflunum vegna kvikmyndatöku frá klukkan sextán síðdegis fram til klukkan tuttugu í kvöld. Umferðarhraði verður tekinn niður og vegfarendur eru beðnir að aka með gát. Tökur fóru einnig fram í morgun.