Loki, teiknimyndafígúran sem var alltaf á sínum stað á baksíðu DV, er snúinn aftur á DV.is. Hefur honum verið fundinn staður efst á forsíðu DV.is þegar vefurinn er opnaður í tölvu. Á árum árum var Loki staðsettur í horninu á baksíðu blaðsins og sagði eitthvað sem vísaði í frétt á síðunni, stundum var það ekki augljóst hvaða frétt hann var að visa í en í dag er hægt að smella á það sem hann segir og fara þannig inn í þá frétt.
Loki snýr aftur