Húsnæði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að Hlíðasmára 1 í Kópavogi er lokað vegna rafmagnsleysis. Þetta kemur fram á miða sem hefur verið hengdur á aðaldyr húsnæðisins, á vef embættisins og eins kemur það fram ef hringt er í aðalnúmer.Á vefnum segir: „Skrifstofa sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára er lokuð til a.m.k. 13 í dag.“Þegar hringt er í embættið segir símsvari: „Við getum því miður ekki tekið símann sem stendur vegna yfirstandandi rafmagnsleysis. Við biðjumst velvirðingar á þessu og biðjum ykkur um að hringja aftur síðar.“
Lokað hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna rafmagnsbilunar