Þónokkra lögreglubíla mátti sjá á Laugavegi við Vegamótastíg í morgun er fjöldi lögreglumanna var þar við aðgerðir. Vísir greindi fyrst frá.
Lögreglan vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu en aðgerðunum er lokið.
„Það er bara á viðkvæmu stigi,“ segir Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi við mbl.is en staðfestir þó að lögregluaðgerð hafi verið þar í gangi.