Lögreglan rannsakar alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þetta kom fram í viðtali við ráðherrann í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þorgerður Katrín bar sig lengst af vel í vitðalinu en þegar talið barst að umræðunni í hennar garð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun og loks að hótunum, sem beinst hafa að henni, virtust tilfinningarnar á endanum bera hana ofurliði. Greindi ráðherrann einnig frá því að undanfarið hafi breytingar orðið á hennar lífi og þurft hafi að grípa til ákveðinna ráðstafana vegna hótana í hennar garð.
Lögreglan rannsakar alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar - „Ýmislegt sem hefur þurft að breytast í mínu lífi“