Umfangsmikil leit lögreglunnar og björgunarsveita stendur nú yfir á Akureyri. Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra í samtali við Vísi.
Lögreglu hafi borist tilkynning um týndan einstakling fyrr í dag og leit hafi þegar staðið yfir í nokkrar klukkustundir. Leitin beinist aðallega að svæði sunnan Glerár en leitað sé á allri Akureyri. Lögregla gat ekki tjáð sig um það að svo stöddu hvort einstaklingurinn sem leitað er að sé á fullorðinsaldri.
Ekki sé talið að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.