Fyrir hönd foreldra barns í Vesturbæjarskóla hefur lögmaður sent erindi til skólastjóra skólans, Margrétar Einarsdóttur, þar sem óskað er eftir undanþágu barnsins frá kynfræðslu á vegum skólans sem unnin er í samstarfi við Samtökin 78.
Rök foreldranna eru þau að fræðslan samræmist ekki trúar- og lífsskoðunum fjölskyldunnar. Í erindinu eru rakin þau atriði í kennslunni sem foreldrunum þykja fara gegn kristinni sannfæringu þeirra og sýn á kyn og sjálfsmynd barna.
Samkvæmt erindinu telja foreldrarnir að fræðslan byggi meðal annars á þeirri hugmynd að börnum sé kennt að þau geti verið fædd í „röngum líkama“ og að kyn séu ekki eingöngu bundin líffræðilegum þáttum. Foreldrarnir hafna þeirri nálgun alfarið.
„Foreldrar barnsins telja að kynin séu aðeins tvö og að ekkert sé til sem heiti rangur líkami barns,“ segir meðal annars í erindinu.
Segja fræðsluna geta ruglað börn
Í bréfi lögmannsins kemur fram að foreldrarnir telji fræðsluna geta ruglað barn þeirra í ríminu varðandi kynferðis- og kynvitundarmál og haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd þess.
Þá kemur fram að foreldrarnir séu ekki andvígir kynfræðslu almennt heldur þeim hugmyndafræðilegu þáttum sem þau telja að ákveðin kyn- og hinseginfræðsla byggi á.
Í erindinu segir að foreldrunum sýnist, meðal annars út frá efni sem birtist á vef Reykjavíkurborgar, að slíkar hugmyndir séu áberandi í þeirri fræðslu sem barnið á að sækja.
Óska eftir undanþágu og dvöl á bókasafni
Foreldrarnir fara fram á að barninu verði veitt algjör undanþága frá viðkomandi kennslu og að það dvelji á bókasafni skólans á meðan fræðslan fer fram.
Í erindinu er vísað til mannréttindasáttmála Evrópu og þess að stjórnvöldum beri að virða rétt foreldra til að tryggja að menntun barna þeirra samræmist trúar- og lífsskoðunum fjölskyldunnar.
Samstarf skóla og Samtakanna 78
Samtökin 78 hafa um árabil komið að fræðslu í grunnskólum landsins í samstarfi við skóla og sveitarfélög. Samkvæmt samtökunum er markmið fræðslunnar meðal annars að stuðla að virðingu, fjölbreytileika, öryggi barna og aukinni þekkingu á hinsegin málefnum.
Nútíminn fjallaði um mál fjölskyldunnar fyrir hálfum mánuði þegar foreldrarnir sögðust hafa tekið barn sitt úr skóla eftir að hafa fengið neikvæð viðbrögð við óskum sínum um undanþágu.
Með erindi lögmannsins vilja foreldrarnir fá formlega viðurkenningu á rétti sínum til að undanþiggja barn sitt kennslu sem þau telja fara gegn trúar- og lífsskoðunum fjölskyldunnar.
Málið snýst meðal annars um hvort foreldrar geti krafist undanþágu barna sinna frá tiltekinni kennslu á grundvelli trúar- og lífsskoðana, og hvort skólayfirvöldum beri lagaleg skylda til að verða við slíkum óskum.