Afstaða sveitarstjórnar Múlaþings til framtíðar samkomusalarins í Valaskjálf á Egilsstöðum liggur ekki fyrir.
Íbúafundur var á Egilsstöðum í kvöld. Á fundinum fór sveitarstjóri yfir möguleikana sem sveitarfélagið hefur, sem er ýmist að gera ekkert, yfir í leigu á salnum upp á tæplega 30 milljónir á ári eða kaupa allt húsið fyrir 750 milljónir og flytja bæjarskrifstofurnar þangað. Um 70 manns mættu á fundinn og var samstaða meðal gesta um að halda þyrfti í salinn.
Enginn sambærilegur salur er í bænum. Hann tekur allt að 450 manns í sæti og þar eru oft haldnir tónleikar, útskriftir, árshátíðir, dansleikir og önnur skemmtun. Eigendur hafa talað um að reksturinn standi ekki undir sér. Eftir vatnstjón í vor kemur til greina að breyta honum í smáherbergjahótel.
Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja
„Það er sveitarstjórnarfundur á miðvikudaginn og við þurfum aðeins að meta bæði hvað kom fram á fundinum í dag og eiga svo áframhaldandi samtal við eigendur og meta stöðuna í framhaldi af því,“ sagði Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, í sjónvarpsfréttum í kvöld.
Hún segir að ef eitthvað ætti að gera af hálfu sveitarstjórnar þyrfti annað að víkja. Leiga á húsnæðinu myndi þýða einhvers konar þjónustuskerðingu, fjárhagsramminn leyfi ekki annað. Ef kaupa ætti húsnæðið þyrftu áætlaðar fjárfestingar að víkja.
„Það felur í sér grunnskóla og viðbyggingu íþróttamannvirkja sem þyrfti að setja í bið og það er ekki víst að það sé vilji íbúa fyrir því. Það er lögboðin þjónusta en þetta er það að vitaskuld ekki.“
Heyra mátti á fundargestum að salurinn væri samfélagslega mikilvægur. Jónína segir að þess vegna ætli sveitarstjórnin að gefa sér góðan tíma í að komast að niðurstöðu.
Hafþór Máni Valsson stóð fyrir undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á eigendur og sveitarfélagið að varðveita salinn. Honum fannst svörin sem gefin voru á fundinum loðin og spurningum sem hann vildi svör við ekki svarað. Hann hefði viljað skýrari svör við því hvort vilji sé hjá bænum til að koma til móts við eigendur.