Lítil landsbyggðaþorp á Taílandi verða fyrir endurteknum flóðum vegna aðgerða þarlendra stjórnvalda til að vernda höfuðborgina Bangkok. Fréttamenn AFP hafa séð nokkur þorp í mánuðinum sem eru komin á kaf.
Þrátt fyrir að húsin í þorpunum séu flest byggð á stultum dugir það ekki lengur til að verja þau fyrir vatnavöxtum.
Árið 2011 réðust taílensk stjórnvöld í framkvæmdir á varnargörðum sem miðuðu að því að vernda Bangkok en vatninu var þess í stað veitt í átt að litlum þorpum sem hafa mörg fundið fyrir því, ekki síst undanfarin ár.
Þá er fleira í húfi en þorp, en UNESCO-verndaðar rústir í Taílandi eiga það líka á hættu að lenda undir vatni.
Stjórnvöld hleypa umframvatni út
Talsmaður áveitustofnunar Taílands, Thanet Somboon, segir í samtali við AFP að loftslagsáhrif ásamt lágri legu landsins valdi mestum vandamálum. Hins vegar hafi varnargarðar líka haft áhrif á árfarveg árinnar Chao Phraya.
Þegar áveituskurðir fyllist neyðist stjórnvöld þar að auki til að hleypa umframvatni niður ánna og það leiði af sér alvarlegri flóð. Thanet viðurkennir þó að stjórnvöld gætu þurft að endurskoða innviði með tilliti til áhrifa á veikari svæði.
Flóð eru árlegur viðburður í Taílandi þegar monsún-tímabilið gengur yfir en vegna loftslagsbreytinga rignir meira, vatnið flæðir hærra og vandinn hefur aukist.