Þrettán látin börn voru dregin á land úr Ganges-fljóti á Indlandi í gær eftir að bát hvolfdi á leið á hátíð í nágrannaþorpi þeirra. Börnin voru yngri en fimmtán ára en sex manns komust lífs af.
Narendra Modi forsætisráðherra Indlands segir í tilkynningu að sársaukafullt hafi verið að fá fregnir af slysinu og hefur hann tilkynnt að fjölskyldur hinna látnu muni hljóta bætur.