„Ákvörðun Sýnar að hætta að senda út fréttir í sjónvarpi eru afskaplega vond tíðindi fyrir okkur öll, samfélagið í heild,“ skrifar Heiðar Örn Sigfinsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, í færslu á Facebook þar sem hann bregst við þeim tíðindum að Sýn hafi ákveðið að hætta að senda út kvöldfréttir og binda þar með enda á 40 ára sögu sjónvarpsfrétta Stöðvar 2, síðar sjónvarps Sýnar.
Síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar verður sendur út klukkan 18.30 í kvöld. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir, að því er segir í tilkynningu Sýnar til Kauphallar í morgun.
Heiðar Örn skrifar að með þessu sé dregið úr fréttaþjónustu við almenning á sama tíma og þörfin á því að greina fréttir frá falsi hafi sjaldan verið meiri.
„Þetta eru vond tíðindi fyrir okkur sem enn vinnum við fréttir í sjónvarpi því án samkeppni og samanburðar er aðhaldið minna og fjölbreytnin minni. Röddunum fækkar í fjölmiðlalandslaginu. Ég sendi félögum okkar á fréttastofu Sýnar baráttukveðjur.“