Nýtt landamæraeftirlitskerfi var tekið í notkun á Keflavíkurflugvellli í október. Andlit og fingraför fólks utan Schengen-svæðisins eru skráð í það með rafrænum hætti við komu og brottför. Undanfarna mánuði hefur þetta verið gert handvirkt en í haust verða sjálfsafgreiðsluvélar teknar í notkun.
Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir farþega með ríkisfang utan Schengen-svæðisins þurfa að nota sjálfsafgreiðsluvélarnar.
Þá er vegabréfið skannað, viðkomandi þarf að gefa fingraför og tekin er andlitsmynd. Upplýsingarnar eru keyrðar í gegnum alþjóðlega gagnagrunna. Að lokum þarf farþegi að fara að landamærahliði þar sem landamæravörður staðfestir upplýsingarnar.
Kerfið hefur valdið talsverðum töfum
Kerfið hefur verið tekið í notkun í öðrum Schengen-ríkjum og valdið talsverðum töfum í landamæraeftirliti.
„Það er eðlilegt þegar svona stórt verkefni er í gangi, sem við erum að innleiða og mörg önnur ríki líka, að þetta taki tíma. En ávinningurinn, við erum strax farin að upplifa hann hérna á þessari landamærastöð á Keflavíkurflugvelli. Vegna þess að ef við styrkjum ytri landamærin, og öll ríkin eru að gera það á sama tíma, þá hindrar það náttúrulega líka að óæskilegir aðilar komist inn á svæðið,“ segir Ómar.
Kerfið tengist bæði SIS-kerfinu, sem er sameiginlegur upplýsingagrunnur Shengen-ríkjanna, og gagnagrunni Interpol, þar sem skráðar eru upplýsingar um fólk sem er eftirlýst.
Hægt er að breyta nafni en ekki lífkennum
„Þegar þú skráir þetta inn í grunninn er mjög erfitt fyrir viðkomandi að ætla að komast í gegnum ytri landamærin þó svo að hann sé kannski búinn að fá sér nýtt vegabréf eða breyta um nafn vegna þess að við erum með afrit af lífkennum viðkomandi og þú ert ekkert að fara að breyta þeim.“
Það þurfa ekki allir að nota nýja tækjabúnaðinn. Íslendingar, og ríkisborgarar í EFTA- og EES-ríkjum, fara í gegnum sjálfvirku ABC-hliðin sem er öllu fljótlegra.