Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
Fjórum árum áður en Spánn gekk í Evrópusambandið flutti Hólmfríður Matthíasdóttir, útgáfustjóri Forlagsins, til Barcelona. Hún hefur upplifað miklar breytingar þar og segir Evrópusambandið hafa dælt styrkjum til Spánar og það til ýmissa mála, eins og til endurbóta á samgöngum og landbúnaði jafnt sem styrkjum til menningarmála. Þá hafi katalónskan hlotið meðbyr.
Haustið 1982, aðeins sjö árum eftir að Franco lést, kom Hólmfríður, kölluð Úa, fyrst til Barcelona, hvar hún hefur búið síðan, þó að síðasta áratuginn hafi hún jafnframt búið á Íslandi, eftir að hún varð útgáfustjóri Forlagsins. Þar á hún heimili og eiginmann, hér heima er starfið hennar núna og annað heimili. Áður hafði hún árum saman starfað við bókaútgáfu í Barcelona, allt frá árinu 1997, hjá stóra útgefandanum RBA, þar sem sem hún var útgáfustjóri og yfir höfundarréttardeild.
Í Barcelona menntaði hún sig og giftist. En fyrst þegar hún flutti þangað voru aðeins fjögur ár í að Spánn gengi inn í Evrópusambandið, sem gerðist í janúar árið 1986.
„Ég er þarna þegar kosningar voru á Spáni og sósíalistar komast til valda og þá hraðast breytingarnar sem hófust við andlát Francos. Ég var kannski ekki meðvituð um það. Ég var bara í mínu námi og nýskriðin úr menntaskóla, var bara …