Utanríkisráðuneytið hefur frá upphafi árs leigt út fyrrum embættisbústað íslenska sendiráðsins í Ósló. Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að írska sendiráðið í Ósló hafi haft embættisbústaðinn til leigu frá því í janúar. Það er gert vegna endurbóta sem standa yfir á þeirra embættisbústað.
Leigutímabili írska sendiráðsins lýkur í lok þessa mánaðar. Það hefur greitt 85 þúsund norskar krónur á mánuði í húsaleigu sem er rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna. Þess má geta að sendiherra Írlands í Ósló er einnig sendiherra landsins gagnvart Íslandi.
Embættisbústaðurinn sem stendur við Langviksveien á Bygdøy hefur verið á sölu frá því á fyrri hluta síðasta árs. Ásett verð er 65 milljónir norskra króna. Það samsvarar nærri 850 milljónum íslenskra króna. Frá því að eignin var sett á skrá hefur ásett verð verið lækkað um tíu milljónir norskra króna, um 130 milljónir íslenskra.
Húsið hefur verið í eigu íslenska ríkisins frá 1952. Það er alls 768 fermetrar og var byggt árið 1912.
Í fyrra var aðsetur íslenska sendiherrans í Ósló flutt í íbúð í fjölbýlishúsi á Aker Brygge. Nýju hýbýlin eru 363 fermetrar. Íbúð sendiherrans var áður þrjár minni íbúðir sem voru sameinaðar í eina. Kaupverðið var litlu minna en ásett verð gömlu villunnar á Bygdøy eða rétt tæpar 60 milljónir norskra króna.