Veðrið hefur sett strik í reikninginn á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu þó að blíða hafi verið norðan- og austanlands. Fyrri hluti júlímánaðar var sá úrkomusamasti í Reykjavík frá upphafi mælinga. Rigningin hefur áhrif á ýmsa, svo sem ungmenni í Vinnuskólanum og grjótharða golfara.
„Þegar maður kíkir á veðurspána á morgnana og maður sér að það sé rigning þá er maður ekki alveg jafn til í að mæta en þannig er þetta,“ segir Tryggvi Týr Marínósson, starfsmaður Vinnuskólans.
„Þegar maður sér að það sé sól þá vill maður frekar fara fram úr og hitta vini sína og þannig. En þegar það er rigning þá nennir maður því eiginlega ekkert.“