Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi um breyttan útivistartíma barna í samráðsgátt. Þar er lagt til að útivistartími tíu til tólf ára barna verði lengdur um eina klukkustund, til klukkan 21, yfir vetrartímann.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að efni frumvarpsins hafi áður verið kynnt sem hluti af drögum að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd sem lagt var fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga.
Nú sé efnið kynnt í sérstöku frumvarpi og óskað eftir frekara samráði við börn um þennan afmarkaða en mikilvæga málaflokk sem snerti daglegt líf fjölskyldna í landinu.
Önnur breyting sem lögð er til í frumvarpinu er að sumartími reglnanna taki gildi mánuði síðar en nú er, 1. júní í stað 1. maí.
„Reglur um útivistartíma barna hafa að meginstefnu til staðið óbreyttar frá árinu 1992. Við undirbúning frumvarpsins hefur meðal annars verið tekið mið af sjónarmiðum barna um aukinn sveigjanleika, þroska og möguleika til útiveru og samveru, samhliða verndar- og forvarnarsjónarmiðum,“ segir í tilkynningu.
Börn, foreldrar, fagfólk, hagaðilar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér frumvarpsdrögin og senda inn umsögn í Samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til og með 28. ágúst.