Saksóknarar dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna og lögmenn Nicolás Maduros, fyrrverandi forsætisráðherra Venesúela, hafa lagt til að réttarhöld yfir Maduro hefjist í júní á næsta ári.
Það er í höndunum á Alvin Hellerstein umdæmisdómara að ákveða dagskrá réttarhaldanna.
Maduro var steypt af stóli sem forseta Venesúela í janúar og fluttur til Bandaríkjanna. Hann og Cilia Flores, eiginkona hans, voru ákærð í Bandaríkjunum en hafa bæði lýst yfir sakleysi sínu. Maduro var meðal annars ákærður fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning til Bandaríkjanna.
Sameiginlega beiðni frá lögfræðingum dómsmálaráðuneytisins og verjendum Maduros má finna í nýjum málsgögnum sem voru lögð fram í aðdraganda málflutnings sem fer fram á Manhattan síðdegis í dag.
Í beiðninni eru lögð fram eins konar drög að næstu skrefum. Gert er ráð fyrir að Maduro sæki um frávísun málsins ekki síðar en 2. september. Það verður líklega gert á grunni þess að Maduro njóti friðhelgi sem þjóðarleiðtogi fullvalda ríkis.
Eftir að saksóknarar hafa afhent sönnunargögn, sem leynd hvílir yfir á þessu stigi málsins, til verjenda er búist við síðari frávísunarkröfu Maduros eigi síðar en 11. janúar.
Maduro og Flores hafa verið í haldi í fangelsi í Brooklyn síðan þau voru flutt til Bandaríkjanna frá Venesúela.