Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent inn umsögn um umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um matvöruverð, þar sem fram kom að matvöruverð á Íslandi væri um 55% hærra en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins.
Í umsögninni setur félagið fram átta tillögur sem það telur geta stuðlað að lægra matvöruverði með aukinni samkeppni, lægri kostnaði og færri viðskiptahindrunum.
Beinar greiðslur í stað tolla
Meðal helstu tillagna FA er að dregið verði úr tollvernd á mjólkur- og kjötvörum og að stuðningur við bændur verði í auknum mæli veittur með beinum greiðslum í stað tolla. Félagið vill einnig afnema tolla á matvælum sem ekki eru framleidd hér á landi og bendir meðal annars á að 46 prósenta tollur sé lagður á franskar kartöflur þrátt fyrir að engin innlend framleiðsla sé til staðar.
Hvað telst skortur?
FA leggur jafnframt til að stjórnvöld skilgreini í lögum hvað teljist skortur á innlendri framleiðslu svo unnt sé að lækka tolla tímabundið þegar vörur skortir, líkt og félagið segir hafa komið upp með egg.
Banna útboð tollkvóta
Í umsögninni er einnig lagt til að undanþágur mjólkur- og kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum verði þrengdar og samkeppniseftirlit með samrunum hert. Þá vill félagið banna fyrirtækjum sem njóta slíkra undanþága að bjóða í tollkvóta fyrir búvörur og breyta fyrirkomulagi úthlutunar tollkvóta þannig að þeir verði úthlutaðir án endurgjalds.
Laun í takti við getu útflutningsgreina
Loks telur FA að breytingar á vinnumarkaði geti einnig haft áhrif á matvöruverð. Félagið leggur til að horft verði til norræns vinnumarkaðslíkans þar sem launaþróun taki mið af greiðslugetu útflutningsgreina og bendir á að bæði laun og vextir séu hærri á Íslandi en í samanburðarlöndum, sem auki kostnað fyrirtækja og skili sér í hærra vöruverði.