Lárus Welding, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri Glitnis, vill að máli hans fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu verði vísað til yfirdeildar dómstólsins.
Mannréttindadómstóllinn sýknaði íslenska ríkið í dag af kröfum Lárusar. Hann taldi að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar þegar sérfróður meðdómandi var skipaður í Stím-málinu. Fjórir af sjö dómurum höfnuðu því og sýknuðu íslenska ríkið. Þrír dómarar voru því ósammála og skiluðu séráliti.
Lárus hefur falið lögmanni sínum að óska eftir því að máli hans verði vísað til yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu.