Landsréttur mildaði í dag refsingu Stefáns Blackburn og Lúkasar Geirs Ingvarssonar í 16 ára fangelsi. Matthías Björn Erlingsson hlaut 12 ára fangelsisdóm.
Áður höfðu þeir Stefán og Lúkas Geir verið dæmdir í 17 ára fangelsi í Héraðsdómi vegna aðildar þeirra að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, frelsissviptingu, fjárkúgun og ráni.
Matthías Björn var áður dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir sömu sakir í héraðsdómi.
Einnig var felldur dómur yfir 18 ára pilti og tvítugri stúlku sem tengjast málinu.
Pilturinn var sýknaður fyrir Landsrétti en stúlkan dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Elimar Hauksson, lögmaður stúlkunnar, segir það vissulega vonbrigði en þó sé jákvætt að fallist hafi verið á að ásetningur hennar hafi ekki staðið til þess að Hjörleifur yrði beittur líkamlegu ofbeldi. Hún hafi verið sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni. Ekki hafi verið fallist á þann málatilbúnað ákæruvaldsins um að fá hana sakfellda fyrir fjárkúgun.
„Enda var hún ekki ákærð fyrir fjárkúgun og fjárkúgun ekki verknaðarlýst í þessari ákæru,“ segir Elimar.
Pilturinn var áður dæmdur í héraðsdómi í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í málinu.
Stúlkan var sýknuð í héraði af aðild að frelsissviptingu og ráni. Stúlkan hringdi í Hjörleif og lokkaði hann út af heimili sínu og í bíl Stefáns. Lögmaður hennar segir að hún hafi þó ekki hitt Stéfan, Lúkas eða Matthías umrætt kvöld og að hún hafi verið stödd annarsstaðar þegar hún hringdi í Hjörleif. Farið var fram á 24 mánaða fangelsi yfir henni, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna.
Héraðssaksóknari áfrýjaði sýknudómi hennar meðal annars á þeim forsendum að hún hefði tengsl við fleiri tálbeitu- og fjárkúgunarmál.
Hjörleifur Haukur var numinn á brott af heimili sínu í Þorlákshöfn 10. mars. Í ákæru segir að hann hafi verið beittur hrottafengnu ofbeldi í fimm klukkustundir sem dró hann til dauða og verið skilinn eftir klæðlítill á göngustíg við Gufunes í Reykjavík. Þar fannst hann í morgunsárið nær dauða en lífi. Hann lést á Landspítalanum skömmu eftir að komið var með hann þangað.
Fimm tennur voru brotnar í Hjörleifi og poki settur yfir höfuð hans til að þvinga hann til að gefa upp aðgangsorð að heimabanka.
Ákærðu komust inn í heimabanka Hjörleifs með aðgangsorði hans og rafrænum skilríkjum og millifærðu þrjár milljónir króna af reikningi hans inn á reikning eins sakborninganna.