Landsliðspar eignaðist sitt þriðja barn

Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson
Mynd: Instagram/Fanndís Friðriksdóttir
Knattspyrnuparið Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson hafa eignast sitt þriðja barn en þau greindu frá því á samfélagsmiðlum í gær.
Um er að ræða þriðja barn parsins en fyrir áttu þau einn strák og eina stelpu. Fanndís hefur af mörgum verið talin ein besta knattspyrnukona Íslands á 21. öldinni en hún hefur leikið 110 landsleiki fyrir hönd Íslands og spilaði á Íslandi, í Frakklandi og í Noregi.
Eyjólfur var einnig þekktur knattspyrnukappi og hefur leikið fimm leiki fyrir hönd Íslands en hann var sjálfur atvinnumaður í Svíþjóð og Danmörku í áratug áður en hann snéri aftur heim úr atvinnumennsku.