Greiningadeild Landsbankans telur að stýrivextir verði hækkaðir í mánuðinum. Næsta vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabankans verður 19. ágúst. Hún hækkaði vexti um 0,25 prósentustig við síðustu ákvörðun í maí.
„Ákvörðunin var í samræmi við væntingar okkar og studdu allir nefndarmenn hana. Nefndin gaf skýrt til kynna að hún væri tilbúin til að hækka vexti enn frekar ef þess þyrfti þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.“
„Verðbólga er afar þrálát“
Líkt og áður segir spáir greiningardeildin hærri vöxtum en tiltekur ekki nákvæmlega hversu mikið hún telur að þeir eigi eftir að hækka.
Síðasta verðbólgumæling fyrir næstu vaxtaákvörðun var birt í síðari hluta júlí. Ársverðbólga jókst lítillega í mánuðinum og mældist 5,3%.
„Verðbólga er afar þrálát nú um tíðir. Við gerum ráð fyrir því að hún haldist óbreytt í ágúst og hækki svo lítillega í september,“ segir í fréttabréfi bankans. Gangi sú spá eftir bresta forsenduákvæði kjarasamninga í haust. Lítil bjartsýni hefur verið meðal forystumanna verkalýðshreyfingarinnar um að ákvæðin haldi. Þau bresta ef verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst.
Hagkerfið sýnir merki kólnunar
„Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu, hærri flugfargjöld, hækkanir á skólagjöldum Háskóla Íslands og hækkun á komugjöldum í heilsugæslu eru meðal þeirra þátta sem hafa mest áhrif til að viðhalda hárri verðbólgu næstu mánuði.“
Í greiningu bankans segir að hagkerfi sýni á sama tíma merki kólnunar. Það sýni meðal annars tölur um atvinnuleysi. Það var 4% í júní, 0,6 prósentustigum hærra en ári fyrr. Þá hefur raunverð íbúða lækkað á milli ára átta mánuði í röð.