Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun slasaðan sjómann 185 sjómílur suðvestur af landinu. Hún naut aðstoðar TF-SIF flugvélar Landhelgisgæslunnar.
Skipstjóri spænsks fiskiskips hafði samband við Landhelgisgæsluna síðdegis í gær eftir að einn skipverji hafði slasast.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að meiðsl mannsins hafi verið með þeim hætti að nauðsynlegt var talið að koma honum undir læknishendur eins fljótt og auðið var.
Skipið var staðsett talsvert frá landi þegar kallið barst en skipstjóra var bent á að sigla í átt að Íslandi inn í íslenska efnahagslögsögu. Flugvél Landhelgisgæslunnar lagði svo af stað 6:55 morguninn eftir en þyrlan lagði svo af stað klukkan 7:45. Alls tók það eina og hálfa klukkustund fyrir þyrluna að komast á björgunarstað.
Þegar skipið var komið um 185 sjómílur suðvestur af landinu var skipverjinn hífður um borð í þyrluna og í framhaldi fluttur á Landspítalann.
Þar sem vegalengdin var löng naut þyrlan aðstoðar flugvélarinnar sem annaðist samskipti og fann þar að auki bestu mögulegu flugleið að björgunarstað.
„Þyrlurnar okkar eru þannig gerðar að þær geta annast leit innan lögsögu Íslands. Svo þegar skipið var komið nógu nálægt landi þá var þyrla send til móts við skipið, segir Ásgeir.