Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr dælu, úr 24 prósentum í 11, hefur tekið gildi. Miðað við verð í gær var áætlað að lítri af bensíni myndi lækka við það um 25 krónur að meðaltali, og lítri af dísilolíu um 30 krónur.
Lækkunin er liður í tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu.
Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, sést að verð hjá Atlantsolíu, Olís, ÓB, Orkunni og N1 hefur almennt lækkað um á bilinu 26,5 til 27,8 krónur á lítrann af bensíni og 30,5 til 32,8 krónur af dísil frá því í gær.
Samkvæmt yfirliti yfir ódýrasta eldsneytið í morgun kostar bensínlítri nú 202,30 krónur þar sem hann er ódýrastur, og dísilolía 244,60 krónur.
Tímabundið lagaákvæði skyldar olíufélögin til að skila verðlækkun að fullu til neytenda. Samkeppniseftirlitið fylgist með og má sekta olíufélög sem brjóta lögin.