Á vef Veðurstofunnar segir að frost verði víða 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum á Norðurlandi, en hiti að fimm stigum við suðurströndina.
„Á morgun grefur lægð um sig suðvestur af landinu og það fer að blása aðeins af suðaustri. Dálítil él eða skúrir víða, þó síst á Norðurlandi. Hitinn þokast aðeins upp á við.
Svipað veður helst fram á laugardag, en seinnipartinn nálgast lægð úr suðri og þá herðir á vindi. Um kvöldið er spáð suðaustan hvassviðri með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands. Hægari vindur og úrkomulítið annars staðar.
Á sunnudag er síðan útlit fyrir stífa suðaustanátt með rigningu og mildu veðri, en að mestu þurru á Norðurlandi,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Suðaustan 5-13 m/s suðvestan- og vestanlands, annars hægari. Dálítil él eða skúrir, en að mestu þurrt á Norðurlandi. Frost víða 0 til 8 stig, en hiti 0 til 5 stig við suður- og vesturströndina.
Á laugardag: Austan og suðaustan 8-15, skýjað og lítilsháttar snjókoma eða rigning suðaustantil. Hægari og bjart með köflum norðanlands. Hvessir og hlýnar um kvöldið, með rigningu eða slyddu á Suður- og Vesturlandi.
Á sunnudag: Suðaustan 10-18 og rigning, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Á mánudag: Suðaustan- og austanátt og vætusamt, en úrkomulítið á Norðurlandi. Fremur milt.
Á þriðjudag: Suðaustan- og austanátt og vætusamt, en úrkomulítið á Norðurlandi. Fremur milt.