Þekkt sjónvarps- og útvarpsstef fengu nýjan búning á tónleikunum Línuleg saxskrá í Iðnó í kvöld. Þar leiddu saman hesta sína margir af þekktustu blásturshljóðfæraleikurum landsins og Saxófónsveit Tuma Torfasonar og fluttu gamalkunnug stef sem hafa rammað inn línulega dagskrá RÚV, eins og til dæmis upphafsstefið úr Landanum og smáauglýsingastefið úr útvarpinu.
Leynigestur kvöldsins var ekki af verri endanum; Sigvaldi Júlíusson, þulur hjá Ríkisútvarpinu til margra ára steig á stokk með tónlistarmönnunum og kynnti þá til leiks, með sínu nefi.