Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði samkomuna Þjóðin ræður í Austurbæjarbíói í kvöld. Sagði Kristrún að Íslendingar væru vitur þjóð sem bæri að treysta og niðurstöðunni yrði fylgt, sama hvernig hún yrði.„Höfum það hugfast að Ísland væri aldeilis ekki á þeim stað sem við erum í dag — ef að fyrri kynslóðir hefðu látið duga að huga að áhyggjum sínum, og látið tækifærin ganga úr greipum þegar þau gáfust,“ sagði Kristrún.
Kristrún: „Sækjum góðan samning fyrir Ísland og sjáum svo til — við getum það vel — og við höfum gert þetta áður“