Krefjast þess að Meta breyti „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að Meta hafi ekki brugðist við upplýsingum um tíma sem börn verja á öppunum á næturnar, hvernig Reels og Stories geti leitt til áráttukenndrar notkunar og hvernig efni sem sýnt er á grundvelli reiknirita geti leitt unglinga að sífellt öfgafyllra efni.
Meta verður að breyta „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram, ella á fyrirtækið yfir höfði sér háar sektir, varaði Evrópusambandið við í dag.
ESB sakar bandaríska tæknirisann um að hafa ekki dregið nægilega úr þeirri áhættu sem samfélagsmiðlarnir skapa notendum, sérstaklega börnum og viðkvæmum fullorðnum, vegna eiginleika sem eru hannaðir til að halda fólki lengur inni á Facebook og Instagram.
Sérstakar áhyggjur beinast að eiginleikum á borð við endalaust flettifæði (infinite scroll), mjög sérsniðin efnisstreymi og sjálfvirka spilun myndbanda.
„Vernd líkamlegrar og andlegrar heilsu Evrópubúa verður að vera forgangsmál hjá samfélagsmiðlum,“ sagði Henna Virkkunen, framkvæmdastjóri ESB í tæknimálum, í yfirlýsingu.
Auka þrýsting á stórfyrirtæki
Evrópusambandið hefur á undanförnum mánuðum aukið þrýsting sinn á stór tæknifyrirtæki um að vernda notendur betur á netinu, sérstaklega börn.
Í bráðabirgðaniðurstöðu sem birt var í dag sagði framkvæmdastjórn ESB að hún teldi að „Meta þurfi að gera breytingar á hönnun bæði Instagram og …