Kostnaður Bandaríkjanna vegna stríðsins við Íran er áætlaður rúmlega 48 milljarðar dollara frá því í febrúar.
Arthur Miller, aðstoðarfjármálastjóri í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, greindi bandarískum þingmönnum frá þessu í gær. Þessi upphæð er ríflega 26 prósentum hærri en útreikningar gáfu til kynna 1. ágúst síðastliðinn en þá var kostnaðurinn metinn á 38 milljarða dollara.
Inni í þessum kostnaði er þó ekki tjón á bandarískum herstöðvum í Mið-Austurlöndum en Íranar hafa gert fjölda flugskeyta- og drónaárása á bandarískar herstöðvar síðan átök hófust 28. febrúar.