Sum lönd stækka og önnur minnka á nýju heimskorti eftir að ályktun um það var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Landfræðingur segir landakort pólitísk.
Robert Dussey utanríkisráðherra Togo bar upp ályktunina fyrir hönd Afríkubandalagsins en fyrri kort hafa sýnt lönd sunnan miðbaugs talsvert minni en þau eru í raun. „Þetta er sögulegt fyrir Afríku og heiminn allan,“ sagði Dussey við þetta tilefni.
Nýja kortið heitir jafnjarðarkort og sýnir rétt flatarmál landsvæða en ekki rétta lögun líkt og fyrri kortagerðir.
Þessi ályktun er ekki bindandi fyrir neinn og enginn er skyldugur til að nota þetta kort. Í ályktuninni var samþykkt að hætta að nota Mercator-kort, sem er ein algengasta kortagerðin og hafa verið gerð síðan á 16. öld.
Afbökuð mynd af löndum og álfum
„Það sem það sýnir er í raun afbökuð mynd af löndum jarðar og heimsálfum þannig að svæði við miðbaug eru mun minni en þau sem eru til pólanna í raunveruleikanum,“ segir Sigmar Metúsalemsson, landfræðingur hjá Eflu, um Mercator-landakort.
Nefna má ýmis dæmi um það. Til dæmis virðist Grænland vera talsvert stærra en Afríka, eins og heimsálfan leggur sig, á Mercator-korti þegar staðreyndin er sú að Afríka er næstum því 14 sinnum stærri.
Ástralía er hátt í fjórum sinnum stærra en Grænland, sem virðist talsvert stærra á korti og þá virðast Ísland og Nígería af áþekkri stærð þegar síðarnefnda landið er um níu sinnum stærra.
Er pólitík í kortunum?
Þetta allt á nýja jafnjarðarkortið að sýna á raunsannari hátt. En í raun og veru er nánast ómögulegt að varpa löndum jarðar á blað, svo vel sé.
Sigmar segir nærtækast að taka appelsínu sem dæmi. „Ef við tækjum börkinn af henni, værum með öll löndin á yfirborðinu og ætluðum síðan að reyna að fletja börkinn út alveg flatan. Það gengi aldrei. Það yrði alltaf bjögun.“
Eru landakort pólitísk? „Já, ég held að þau séu pólitísk og þau hafi alltaf verið. Það er hægt að segja alls konar hluti með kortum,“ segir Sigmar. „Með nýrri tækni og nýjum vörpunum getum við séð heiminn í raunsannara ljósi. Og mér finnst að það eigi að sýna heiminn eins og hann er.“