Að því loknu mun Burnham halda sína fyrstu ræðu fyrir utan bústað forsætisráðherra í Downingstræti 10. Forsætisráðherrann verðandi er 56 ára gamall og hefur að undanförnu starfað sem borgarstjóri Manchester-borgar í norðurhluta Englands og hefur gjarnan verið kallaður „konungur norðursins“.
Breskir miðlar eru þegar farnir að vitna í ræðu hans þar sem sagt er að hann muni lofa Bretum meira andrými og þá segist hann vilja leggja áherslu á að koma ró á breskt stjórnmálalíf og að tekið verði á hlutunum af ábyrgð og festu.
Burnham segist ætla að „endurtengja“ bresku þjóðina og leggja áherslu á málefni sem skipta fólk máli, eins og hækkandi verðlag og að bæta þjónustu.
Samkvæmt BBC mun Burnham tilkynna ætlanir um aukna olíu- og gasvinnslu í Norðursjó.
Sjá einnig: Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“
Mikil ólga hefur verið í breskum stjórnmálum allt frá því þeir fóru úr Evrópusambandinu og verður Burnham fjórði forsætisráðherrann í stuttri valdatíð Karls Bretakóngs, sem tók við árið 2022. Hinir þrír eru Starmer, Rishi Sunak og Liz Truss.
Síðar í dag skýrist einnig hvernig Burnham mun skipa í ráðherraembætti sín. Nú þegar hefur kvisast út að Shabana Mahmood verði næsti fjármálaráðherra og að Ed Miliband taki við sem utanríkisráðherra.