Andlát mannsins er rannsakað sem slys og er rannsókn enn í gangi samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurlandi. Gashitari er sagður hafa fundist í tjaldinu og beinist rannsókn meðal annars að því hvort að fólkið hafi orðið fyrir gaseitrun.
Slysið átti sér stað á almennu tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla sagði í gær að maðurinn hefði verið á áttræðisaldri en konan á sjötugsaldri. Bæði væru íslensk.