Óviðkomandi aðili komst í gögn um starfsfólk Landspítalans nýlega. Samkvæmt Landspítalanum tók öryggisbresturinn til upplýsinga úr könnun sem utanaðkomandi fyrirtæki gerði á starfsánægju starfsfólks. Gögnin teljast ekki mjög viðkvæm.
Aðilinn komst inn í niðurstöður könnunarinnar í gegnum hlekk sem sendur var á starfsmenn og þær voru ekki persónugreinanlegar nema í einu tilviki.
Engin gögn voru tekin í gíslingu. Öryggisbresturinn tengist ekki kerfum Landspítalans og engar upplýsingar um sjúkraskrár eða sjúklinga voru undir.
Persónuvernd staðfestir að Landspítali hafi tilkynnt atvikið til stofnunarinnar og er það komið á borð hennar.
Netöryggissveitinni CERT-IS hefur einnig verið gert viðvart um atvikið og Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, staðfestir við fréttastofu að málið sé til skoðunar.
„Sérfræðingar okkar eru að skoða þetta í samstarfi við Landspítalann,“ segir hann.