Lögregla veitti ökumanni eftirför sem ók vel yfir hámarkshraða á Arnarnesvegi.
Þegar lögreglumenn gáfu ökumanninum merki um að stöðva akstur jók hann hraðann með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum og klessti á ljósastaur.
Í bílnum voru þrír farþegar auk ökumannsins. Enginn slasaðist en verulegt tjón varð á ljósastaurnum.
Bíllinn var fjarlægður af vettvangi með kranabíl.
Í Mosfellsbæ varð umferðaróhapp þar sem ökumenn hlutu minniháttar áverka. Kranabifreið fjarlægði annað ökutækið af vettvangi.
Í póstnúmerum 102 og 109 voru menn fluttir með sjúkrabílum á slysadeild eftir að hafa fallið af rafmagnshlaupahjólum.