Atkvæðagreiðslan heldur áfram í Vesturbæ Reykjavíkur.
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, greiddi atkvæði í KR-heimilinu í Frostaskjóli.
Nú þegar kjörstaðir eru opnir fer fólk að týnast inn. Sígilt stef á kjördegi er að smella af myndum af frambjóðendum að greiða atkvæði.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í Reykjavík, mætti í Vesturbæjarskóla til að kjósa.
Margvísleg málefni eru kjósendum hugleikin fyrir kjördag og oft úr vöndu að ráða þegar í kjörklefann er komið.
Fréttastofa fór um landið síðustu vikur og ræddi við oddvita framboðslista í fjölmennustu sveitarfélögunum og má sjá þá þætti hér: Oddvitaumræður.
Þá hafa margir mátað sig við framboð í sínum heimabæjum í kosningaprófi RÚV sem má nálgast hér:
Hér að neðan má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um kosningarnar.
Gleðilegan kjördag!
Í dag verður gengið að kjörborðinu margfræga í sveitarfélögum landsins. Víðast hvar voru kjörstaðir opnaðir klukkan níu og verður lokað klukkan tíu í kvöld.
Fréttastofa RÚV stendur vaktina um allt land og færir ykkur nýjustu fréttir af framvindu mála hér í þessari fréttavakt, sem og öllum okkar miðlum.
Kosningavakan fer í loftið í sjónvarpinu klukkan 21.45 í kvöld og má búast við fyrstu tölum fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað.